Fotbolti.net
12.02.11 - 06:00
Magnús Már Einarsson

Jeffrey Bruma til Leicester á láni (Staðfest)

Jeffrey Bruma til Leicester á láni (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Leicester hefur fengið varnarmanninn Jeffrey Bruma á láni frá Chelsea út tímabilið.

Þessi 19 ára gamli Hollendingur gæti leikið sinn fyrsta leik með Leicester þegar liðið mætir Derby í dag.
Bruma lék sinn fyrsta leik með Chelsea 17 ára gamall en hann hefur komið við sögu í sjö leikjum hjá liðinu í vetur.

Chelsea ákvað að leyfa Bruma að fara á láni eftir að David Luiz kom til félagsins.

Koma Bruma til Leicester þýðir að Jack Hobbs mun væntanlega fara frá félaginu á láni.

Heimild: BBC

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.