Salah og Matip meðal leikmanna sem eru til sölu


Mynd: Getty Images


Mynd: EPA


Mynd: EPA


Mynd: Getty Images


Mynd: EPA


Mynd: Getty Images

BBC hefur tekið saman helsta slúður helgarinnar og sett saman í flottan slúðurpakka sem fylgir hér fyrir neðan. Í pakkanum má finna nöfn á borð við Mohamed Salah, Jurgen Klopp, Joel Matip, Mason Mount og Sergej Milinkovic-Savic.
Liverpool er reiðubúið til að selja stórstjörnurnar sínar í sumar og er hinn þrítugi Mohamed Salah meðtalinn. (Football Insider)
Real Madrid hefur sett sig í samband við Jürgen Klopp, 55 ára, um að taka við keflinu af Carlo Ancelotti í sumar. (El Nacional)
Liverpool myndi samþykkja 15 milljón punda tilboð í miðvörðinn sinn Joel Matip, sem er 31 árs. (Football Insider)
Stjórnendur Chelsea eru margir hverjir búnir að sætta sig við að missa Mason Mount, 24, frá félaginu. Mount, sem á 18 mánuði eftir af samningi, er eftirsóttur af Liverpool og vill ekki gera nýjan samning við Chelsea. (Telegraph)
Steven Gerrard, 42, er mjög áhugasamur um að taka við stjórastarfi Leeds United eftir brottrekstur Jesse Marsch. (Football Insider)
Gerrard myndi taka Gary McAllister, fyrrum leikmann Leeds og Liverpool, með sér á Elland Road sem aðstoðarþjálfara. (Mirror)
Manchester United er í samningsviðræðum við Marcus Rashford, 25, sem rennur út á samningi eftir 18 mánuði. (GiveMeSport)
Newcastle er að skipuleggja kauptilboð fyrir Sergej Milinkovic-Savic, 27 ára miðjumann Lazio og serbneska landsliðsins, sem verður samningslaus eftir 18 mánuði. (Goal)
Man Utd hefur áhuga á Paulo Dybala, 29 ára sóknartengilið AS Roma. (Calciomercato)
Real Madrid hefur áhuga á Joao Felix, 23 ára framherja Atletico Madrid sem er á láni hjá Chelsea út tímabilið. (Fichajes)
Ruben Neves, 25 ára miðjumaður Wolves, getur valið á milli Man Utd, Liverpool og Newcastle næsta sumar. (Sport)
Inigo Martinez, eftirsóttur 31 árs varnarmaður Athletic Bilbao og spænska landsliðsins, vill frekar skipta til Barcelona heldur en Atletico Madrid. (Sport)
PSG ætlar að gera allt í sínu valdi til að hrifsa Pep Guardiola, 52, úr stjórastólnum hjá Man City. Stjórnendur PSG bjuggust við meiru af Christophe Galtier. (El Nacional)
Harry Kane hefur ekki áhuga á að spila á öðrum vettvangi en í ensku úrvalsdeildinni og mun hafna tilboðum að utan í sumar. (Football Insider)
Franck Kessie hafnaði að skipta yfir til Tottenham á lánssamningi í janúarglugganum. Hann ætlar að berjast fyrir byrjunarliðssæti hjá Barcelona. (Sport)
Marquinhos, 28, er búinn að samþykkja nýjan samning við PSG sem gildir í fjögur og hálft ár. (Nicoló Schira)
Xavi segir að Barcelona sé nálægt því að semja við fjölhæfa varnar- og miðjumanninn Sergi Roberto, 31 árs. (Fabrizio Romano)
AC Milan og Inter hafa bæði áhuga á að ráða Maurizio Sarri, 64, til starfa sem framtíðarþjálfara. Sarri er við stjórnvölinn hjá Lazio og hefur áður stýrt Napoli, Juventus og Chelsea meðal annars. (Football Italia)
Luke Ayling, 31 árs, má búast við nýju samningstilboði frá Leeds. (Football Insider)
Svissneski landsliðsmaðurinn Kevin Mbabu, 27, er á leið heim til Servette í Genf á lánssamningi frá Fulham. (Fabrizio Romano)


Mynd: EPA


Mynd: EPA


Mynd: Getty Images


Mynd: EPA




