12.03.11 - 10:39
Ívan Guðjón Baldursson
Luis Fabiano er kominn til Sao Paulo (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Brasilíski sóknarmaðurinn Luis Fabiano er genginn til liðs við fyrrverandi félag sitt frá Brasilíu, Sao Paulo.
Fabiano skoraði 118 mörk í 160 leikjum með Sao Paulo áður en hann kom til Evrópu árið 2004 þar sem hann fór fyrst til Porto og svo til Sevilla. Hjá Sevilla er hann búinn að skora 106 mörk og hefur verið lykilmaður frá komu sinni til félagsins fyrir sex árum.

Eftir HM 2010 ákvað Fabiano að hann vildi halda heim til Brasilíu og hann hefur átt í miklum vandræðum með meiðsli og önnur vandamál á þessu tímabili og því ákvað félagið að leyfa honum að fara aftur til síns heimalands.
Fabiano er búinn að skrifa undir fjögurra ára samning og þarf Sao Paulo að borga 7.6 milljónir evra fyrir leikmanninn. Luis Fabiano þurfti að gefa upp á bátinn stóran bita af launum sínum til að hjálpa til við félagsskiptin en sagði ástæðuna vera góða.
,,Peningar eru ekki allt í lífinu. Það að geta spilað í þeim búning sem er næst hjartanu er óborganlegt,\" sagði Luis Fabiano.
,,Allt sem ég er orðinn skulda ég Sao Paulo. Ég ætla að leggja mig allan fram fyrir liðið og ætla að skora mikið af mörkum. Ég er strax farinn að ímynda mér að labba úr göngunum á Morumbi leikvanginum.\"
Luis Fabiano verður kynntur af brasilíska félaginu 30. mars, en framherjinn meiddist í síðasta leik Sevilla og því er enginn að flýta sér að gera skiptin opinber.

Heimild: Sporting Life