Tuchel: Ég vorkenni Kane


Mynd: EPA


Mynd: EPA
Það var staðfest í morgun að Harry Kane væri orðinn leikmaður Bayern Munchen. Hann spilaði sinn fyrsta leik í kvöld þegar liðið tapaði í þýska Ofurbikarnum gegn RB Leipzig.
Dani Olmo skoraði þrennu í 3-0 sigri Leipzig en Thomas Tuchel stjóri Bayern skammast sín fyrir frammistöðu sinna manna.
„Ég get ekki útskýrt þetta. Við fáum á okkur mjög auðveld mörk, það er eins og við höfum ekkert gert í fjórar vikur. Þessi frammistaða endurspeglaði ekki æfingarnar undanfarið. Þetta er áhyggjuefni," sagði Tuchel.
„Ég vorkenni Kane, hann heldur örugglega að við höfum ekkert æft síðustu fjórar vikur. Við gerðum ekkert sem við ætluðum að gera."
Fyrsti leikur Kane fyrir Bayern í deildinni verður á föstudaginn eftir tæpa viku þegar liðið heimsækir Werder Bremen.




