Fotbolti.net
12.10.23 - 16:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Handtökuskipun gefin út á hendur Sturridge

Daniel Sturridge.

Daniel Sturridge.

Canon

Mynd: Getty Images

Handtökuskipun hefur verið gefin út á hendur Daniel Sturridge, fyrrum sóknarmanni Liverpool og fleiri félaga, í Los Angeles í Bandaríkjunum.
Sturridge átti að mæta fyrir rétt en gerði það ekki og í kjölfarið var gefin út handtökuskipun.

Málið á rætur að rekja til ársins 2019. Sturridge sagði þá frá að hundinum Lucci hefði verið stolið úr húsi í Los Angeles. Hann bauð fundarlaun ef hundurinn myndi finnast heill á húfi.

Foster Washington, rappari þekktur undir listamannsnafninu Killa Fame, birti myndir á samfélagsmiðlum og hjálpaði að sameina Sturridge og Lucci á nýjan leik. Hann segist hins vegar ekki hafa fengið neitt greitt frá Sturridge.

Málið fór fyrir dóm og átti Sturridge að greiða rapparanum rúmar 4 milljónir króna. Hann hefur ekki enn borgað honum.

Sturridge birti tíst árið 2021 þar sem hann sagði frá sinni hlið á málinu. Hann sagðist hafa greitt ungum dreng verðlaun fyrir að finna hundinn, ekki Killa Fame. Miðað við orð Sturridge, þá var það ekki rapparinn sem fann hundinn - einhver allt annar.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.