12.11.10 - 17:00
Hafliði Breiðfjörð
Izudin Daði Dervic tekur við Leikni F. (Staðfest)

Izudin Daði Dervic.

Mynd: Afturelding

Izudin Daði Dervic.

Mynd: Afturelding
Izudin Daði Dervic hefur verið ráðinn þjálfari 3. deildarliðs Leiknis frá Fáskrúðsfirði en þetta var staðfest á vef félagsins.
Daði lék á sínum tíma með eftirfarandi félögum í efstu deild; KR, Val, Leiftri og Þrótti R. og auk þess FH í fyrstu deild. Í efstu deild á hann að baki 127 leiki og 14 mörk.
Daði hefur meðal annars þjálfað 2. flokk karla og meistaraflokk karla hjá Haukum og meistaraflokk karla hjá Aftureldingu þar sem hann var á síðasta tímabili.
Daði er bróðir Dags Dervic sem þjálfaði og lék með Leikni í kringum um 1990 segir á vef félagsins.
Daði mun flytja með fjölskyldu sína austur um áramótin og hefja störf frá og með þeim tíma. Stefnt er að formlegri undirritun um aðra helgi eða 20. nóvember.

Heimild: Vefur Leiknis F