Fotbolti.net
13.01.11 - 15:04
Magnús Már Einarsson

Arsenal sendir Wellington til Spánar á láni (Staðfest)

Arsene Wenger stjóri Arsenal.

Arsene Wenger stjóri Arsenal.

Canon

Mynd: Getty Images

Spænska félagið Levante hefur fengið framherjann Wellington á láni frá Arsenal út tímabilið.
Arsenal keypti þennan átján ára gamla Brasilíumann frá Fluminense á 3,5 milljónir punda fyrr í mánuðinum.

Wellington fékk aftur á móti ekki atvinnuleyfi á Englandi og því þurfti Arsenal að senda hann á lán.

,,Þessi leið hefur virkað vel áður með leikmenn eins og Carlos Vela,\" sagði í yfirlýsingu á heimasíðu Arsenal.

,,Félagið vonast til að þetta sé besta leiðin til að Wellington bæti sig.\"

Heimild: BBC

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.