Fotbolti.net
13.01.11 - 13:11
Magnús Már Einarsson

Yakubu til Leicester á láni (Staðfest)

Yakubu til Leicester á láni (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Leicester hefur fengið framherjann Yakubu á láni frá Everton út þetta tímabil.
Þessi 28 ára gamli Nígeríumaður gæti síðan gengið alfarið til liðs við Leicester næsta sumar.

,,Það er stórkostlegt að fá Yakubu. Hann kemur með hraða, kraft og reynslu,\" sagði Sven-Goran Eriksson stjóri Leicester.

,,Hann hefur verið fyrirliði hjá landsliði sínu, spilað í stórmótum og hann er heimsklassa leikmaður.\"

Yakubu hefur átt í vandræðum með að finna sitt gamla form eftir að hann sleit hásin árið 2008.

Heimild: BBC

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.