Fotbolti.net
13.01.11 - 16:02
Magnús Már Einarsson

Nathan Ecclestone til Charlton á láni (Staðfest)

Nathan Ecclestone til Charlton á láni (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Charlton hefur fengið sóknarmanninn Nathan Eccleston á láni frá Liverpool út tímabilið.
Þessi tvítugi leikmaður hefur leikið sjö leiki með Liverpool á þessu tímabili en hann var meðal annars í byrjunarliði gegn Utrecht í síðasta mánuði.

Eccleston mun núna leika með Charlton í fyrstu deildinni út tímabilið en í samningnum er engin klásúla um að Liverpool geti kallað leikmanninn til baka.

Jonjo Shelvey, samherji Eccleston hjá Liverpool, sannfærði leikmanninn um að fara til Charlton en Shelvey lék áður með Charlton.

,,Það voru nokkur félög sem höfðu áhuga á mér en Jonjo sannfærði mig um að koma og skrifa undir hjá Charlton,\" sagði Eccleston.

Heimild: Sporting Life

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.