13.01.11 - 18:39
Hafliði Breiðfjörð
Mark Rutgers í Víking (Staðfest)

Mynd: Fótbolti.net - Þórdís Inga Þórarinsdóttir

Hollenski varnarmaðurinn Mark Rutgers er genginn til liðs við Víking frá KR en þetta staðfesti Heimir Gunnlaugsson formaður meistaraflokksráðs Víkings í samtali við Fótbolta.net í dag.
Rutgers sem hefur spilað með KR undanfarnar tvær leiktíðir samdi við Víkinga út komandi tímabil.
Hann kom til KR fyrir tímabilið 2009 og hefur átt fast sæti í miðri vörn liðsins síðan þá.
Samtals hefur hann spilað 45 leiki fyrir félagið í deild og bikar og skorað í þeim fimm mörk. Hann kom til KR frá Utrecht í Hollandi.
Hann er fimmti leikmaðurinn sem kemur til Víkings síðan liðið vann 1.deildina í haust og tryggði sér þar með sæti í Pepsi-deildinni á næstu leiktíð.
Áður komu Björgólfur Takefusa frá KR, Pétur Georg Markan frá Fjölni, Baldur Ingimar Aðalsteinsson frá Val og Hörður Sigurjón Bjarnason úr Þrótti.
Hjá Víkingi leysir hann stöðu Milos Glogovac en Leifur Garðarsson þjálfari félagsins sagði á Víkingur.net í vikunni að hann teldi félagið þurfa sterkari mann í stöðu miðvarðar í efstu deild en Glogovac.