Fotbolti.net
13.02.11 - 21:29
Hafliði Breiðfjörð

David Disztl í Þór (Staðfest)

David Disztl ásamt Páli Viðari Gíslasyni þjálfara Þórs.

David Disztl ásamt Páli Viðari Gíslasyni þjálfara Þórs.

Canon

Mynd: Vefur Þórs

Framherjinn David Disztl er genginn í raðir nýliða Þórs í Pepsi-deild karla og skrifaði undir saming við félagið í kvöld.
Ungverjinn hefur æft með Þór á reynslu að undanförnu og lék með liðinu tvo leiki í Soccerademótinu. Hann skoraði eitt mark í leik gegn KA 2 í mótinu.

Eftir úrslitaleik Þórs og KA í mótinu í kvöld skrifaði hann svo undir samning við Þór sem gildir út komandi tímabil.

Disztl hefur leikið með nágrönnum Þórs í KA undanfarin tvö ár þar sem hann skoraði sjö mörk í fyrstu deildinni í fyrra og fimmtán mörk sumarið 2009.

Eftir leikinn í dag undirritaði einnig Kristján Sigurólason nýjan tveggja ára samning við Þór en Kristján hefur leikið undanfarin ár í Noregi en er nú komin heim að nýju eins og áður var greint frá. Kristján er 23 ára gamall og uppalinn Þórsari hann á að baki 58 leiki með Þór í 1. deild og Vísabikarnum.

Heimild: Vefur Þórs

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.