Hareide tekur við Íslandi

Hareide hér með Birki Bjarnasyni.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Hareide hér með Birki Bjarnasyni.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Age Hareide hefur samþykkt að taka við íslenska landsliðinu. Þetta kemur fram á norska fjölmiðlinum VG í kvöld.
Fótbolti.net greindi frá því fyrst allra miðla í dag að KSÍ væri búið að ræða við Hareide.

Það er sagt frá því að Hareide verði staðfestur sem nýr landsliðsþjálfari á morgun, föstudag.
Hareide vildi ekki tjá sig um málið við VG en Fótbolti.net hefur ekki náð í Norðmanninn þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir á undanförnum dögum.
KSÍ hefur gefið það út að sambandið sé að leita að reynslumiklum þjálfara og Hareide fellur svo sannarlega undir þann ramma. Þessi 69 ára gamli þjálfari hefur stýrt stórliðum á Norðurlöndum á borð við Bröndby, Rosenborg og Malmö.
Hann hefur þá stýrt Noregi og Danmörku í landsliðsfótboltanum. Hann er líka með reynslu þar.
Hareide tekur við starfinu af Arnari Þór Viðarssyni sem var rekinn eftir fyrstu tvo leikina í undankeppni Evrópumótsins. Fyrsta verkefni Hareide með íslenska landsliðið verður í júní.