Fotbolti.net
13.11.10 - 15:27
Hafliði Breiðfjörð

Berglind, Birna, Vesna og Danka í ÍBV (Staðfest)

Berglind Björg ásamt Jóni Ólafi Daníelssyni þjálfara eftir undirskriftina í dag.

Berglind Björg ásamt Jóni Ólafi Daníelssyni þjálfara eftir undirskriftina í dag.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Kvennaboltinn
Kvennalið ÍBV boðaði til fréttamannafundar í dag þar sem staðfest var að félagið hafi styrkt liðið með fjórum sterkum leikmönnum.
Þetta eru þær Berglind Björg Þorvaldsdóttir sem kemur frá Breiðablik, Birna Berg Haraldsdóttir sem kemur frá FH, og þær Vesna Smiljcovic og Danka Podovac sem koma frá Þór/KA.

Berglind Björg Þorvaldsdóttir er 18 ára gamall framherji sem semur við ÍBV til tveggja ára. Hún á að baki sex A-landsleiki og hefur leikið allan sinn meistaraflokksferil, undanfarnar fjórar leiktíðir, með Breiðablik. Hún spilaði als 63 leiki fyrir Breiðablik og skoraði í þeim 30 mörk.

Birna Berg Haraldsdóttir er markvörður FH. Hún framlengir við FH til tveggja ára en kemur til ÍBV á láni út næstu leiktíð. Hún er 17 ára gömul og hefur verið viðloðandi æfingar íslenska A-landsliðsins. Hún hefur leikið með meistaraflokki FH undanfarnar þrjár leiktíðir og spilað í heildina 39 leiki og skorað eitt mark.

Vesna Smiljcovc er 27 ára gamall serbneskur framherji sem semur við ÍBV til tveggja ára. Hún kom fyrst hingað til lands árið 2005 og lék fjórar leiktíðir með Keflavík áður en hún fór til Þór/KA þar sem hún var síðustu tvær leiktíðir. Hún hefur skorað 43 mörk í 105 leikjum hér á landi.

Danka Podovac er 28 ára gömul og einnig frá Serbíu. Hún semur einnig til tveggja ára. Hún kom hingað til lands til Keflavíkur sumarið 2006 og lék svo með Fylki árið 2009 áður en hún fór í Þór/KA fyrir síðustu leiktíð þar sem hún var í sumar. Hún hefur skorað 45 mörk í 86 leikjum hér á landi.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.