13.12.10 - 17:04
Ívan Guðjón Baldursson
Sam Allardyce rekinn frá Blackburn (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Sam Allardyce hefur verið látinn fara úr starfi sínu sem knattspyrnustjóri Blackburn Rovers í ensku Úrvalsdeildinni.
Aðstoðarþjálfari hans, Neil McDonald, hefur einnig verið látinn fara en þessi tíðindi koma eflaust mörgum á óvart.

The Venky\'s Group, eigendur Blackburn Rovers, hafa staðfest þau tíðindi að Sam Allardyce og Neil McDonald hafi verið látnir fara frá félaginu.
Steve Kean mun taka við starfi Big Sam og er það talið vera tímabundið.
,,Við viljum þakka Hr. Allardyce fyrir störf hans í þágu Blackburn Rovers Football Club,\" sögðu eigendur félagsins á opinberri vefsíðu Blackburn.
,,Þessi ákvörðun er tekin sem partur af stærra og víðara plani fyrir félagið.\"
Blackburn er sem stendur í þrettánda sæti ensku úrvalsdeildarinnar en liðið tapaði 2-1 gegn Bolton í gær.

Heimild: Heimasíða Blackburn Rovers