14.01.11 - 07:00
Magnús Már Einarsson
Cicinho til Villareal (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Villareal hefur fengið brasilíska bakvörðinn Cicinho á láni frá Roma út tímabilið.
Cicinho þekkir vel til í La Liga eftir að hann lék með Real Madrid í tvö ár.
Þessi þrítugi leikmaður fór til Roma árið 2007 en hann hefur ekki verið í myndinni þar undanfarna mánuði.
Hjá Villareal fær Cicinho það hlutverk að fylla skarð Angel Lopez sem verður frá út tímabilið vegna hnémeiðsla.
Ef Cicinho stendur sig vel hjá Villareal getur félagið síðan keypt hann næsta sumar.

Heimild: Sky