Fotbolti.net
14.01.11 - 08:25
Magnús Már Einarsson
Ítalska deildin

Mario Boselli til Genoa (Staðfest)

Mario Boselli til Genoa (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Genoa hefur fengið argentínska framherjann Mario Boselli á láni frá Wigan út tímabilið.
Boselli hefur verið að glíma við meiðsli aftan í læri undanfarnar vikur og því komu upp vandræði í læknisskoðuninni en leikmaðurinn stóðst skoðunina að lokum og því náðist að ganga frá samningum.

Boselli kom til Wigan á metfé frá Estudiantes í sumar en talið er að kaupverðið hafi hljóðað upp á sex milljónir punda.

Boselli hefur gengið mjög illa að finna sig í enska boltanum en hann hefur ekki náð að skora í átta leikjum með Wigan.

Þessi 25 ára gamli leikmaður fær núna tækifæri til að sanna sig hjá Genoa sem á möguleika á að kaupa Boselli eftir tímabilið.

Heimild: Sporting Life

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.