14.01.11 - 13:17
Magnús Már Einarsson
Roque Santa Cruz til Blackburn á láni (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Blackburn hefur fengið framherjann Roque Santa Cruz á láni frá Manchester City út þetta tímabil.
Santa Cruz stóðst læknisskoðun í dag og gæti leikið með Blackburn gegn Chelsea á morgun.
,,Mér líður eins og ég sé að koma heim. Þetta er auðveldasta ákvörðunin á ferli mínum,\" sagði Santa Cruz.
Santa Cruz hefur ekki verið í inni í myndinni hjá Roberto Mancini knattspyrnustjóra Manchester City á þessu tímabili og því fær hann að fara á láni fram á sumar.
Þessi 29 ára gamli leikmaður sló í gegn hjá Blackburn frá 2007-2009 þar sem hann skoraði 29 mörk í 70 leikjum.

Heimild: BBC