Fotbolti.net
14.01.11 - 19:07
Magnús Már Einarsson

Chris Powell ráðinn stjóri Charlton (Staðfest)

Chris Powell ráðinn stjóri Charlton (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Charlton Athletic hefur ákveðið að ráða Chris Powell sem knattspyrnustjóra.
Powell lék á sínum tíma yfir 250 leiki með Charlton og hann þekkir því vel til hjá félaginu.

Þessi 41 árs gamli stjóri var áður í þjálfaraliði Leicester auk þess sem að hann stýrði liðinu tímabundið eftir að Paulo Sousa var rekinn.

Powell tekur við Charlton af Phil Parkinson en liðið er sem stendur í sjötta sæti í ensku fyrstu deildinni.

Heimild: BBC

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.