14.02.11 - 16:00
Hafliði Breiðfjörð
Jilie Nelson í ÍBV - Edda María áfram (Staðfest)

Edda María í leik með ÍBV í sumar.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Edda María í leik með ÍBV í sumar.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Edda María Birgisdóttir mun leika áfram með ÍBV á næstu leiktíð en hún var á láni hjá liðinu frá Stjörnunni á seinni hluta síðustu leiktíðar. Þá hefur félagið fengið norður írska landsliðskonu til liðs við sig.
Edda María Birgisdóttir lék með liðinu seinni hluta síðasta tímabils og átti stóran þátt í því að liðið tryggði sér sæti í úrvalsdeild.
Edda kom til IBV að láni frá Stjörnunni og líkaði dvölin það vel að hún ákvað að vera áfram í eyjum.
Julie Nelson 25 ára gömul landsliðskona frá Norður Írlandi hefur ákveðið að ganga til liðs við kvennalið ÍBV fyrir næsta tímabil.
Julie sem á fjöldan allan af landsleikjum að baki leikur í stöðu miðvarðar. Julie kom til IBV í 10 daga til reynslu snemma í janúar og heillaði forráðamenn liðsins.
ÍBV hafði áður fengið til liðs við sig markvörðinn Birnu Berg Haraldsdóttur frá FH, framherjann Berglindi Björgu Þorvaldsdóttur frá ÍBV og þær Dönku Podovac og Vesnu Smiljcovic frá Þór/KA.