14.02.11 - 15:30
Magnús Már Einarsson
Ronaldo leggur skóna á hilluna (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Brasilíski framherjinn Ronaldo hefur lagt skóna á hilluna 34 ára að aldri en hann tilkynnti þetta á fréttamannafundi í dag.
Ronaldo ákvað að leggja skóna á hilluna vegna meiðsla en hann segist ekki geta lengur verið í toppformi til að spila með Corinthians í Brasilíu eins og hann hefur gert undanfarin tvö ár.

Ronaldo er einn magnaðasti markaskorari sögunnar en hann var þrisvar á ferlinum valinn knattspyrnumaður ársins hjá FIFA.
Á ferli sínum í Evrópu lék Ronaldo með PSV Eindhoven, Barcelona, Inter, Real Madrid og AC Milan. Hann skoraði samanlagt yfir 350 mörk á meistaraflokksferli sínum og þau hefðu án efa orðið mun fleiri ef meiðsli hefðu ekki sett strik í reikninginn.
Ronaldo skoraði einnig 62 mörk í 97 landsleikjum með Brasilíu og varð tvívegis heimsmeistari með liðinu. Hann er líka markahæsti leikmaðurinn í úrslitakeppni HM frá upphafi með fimmtán mörk.
Hér að neðan má sjá myndband af öllum mörkunum sem Ronaldo skoraði á HM.
Smeltu hér til að sjá tíu bestu mörk Ronaldo að mati 101greatgoals.com