Býst ekki við að Gylfi verði ríkur á skaðabótamáli - „Mannlegur harmleikur"

Gylfi á EM kvenna í sumar.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Páll Kristjánsson hér til vinstri.

Mynd: KR

Mál Gylfa var fellt niður í dag.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Gylfi á EM kvenna í sumar.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fólk spyr sig eflaust að því núna hvort að fótboltamaðurinn Gylfi Þór Sigurðsson eigi rétt á skaðabótum eftir að hafa í tæp tvö ár verið í farbanni vegna máls sem var fellt niður í dag.
Fótbolti.net sagði frá því í dag fyrst allra miðla að Gylfi væri laus allra mála, hann yrði ekki ákærður fyrir kynferðisbrot gegn ólögráða einstaklingi.
Gylfi var handtekinn í júlí 2021, grunaður um kynferðisbrot gegn ólögráða einstaklingi og hefur rannsókn á því máli verið í gangi síðan þá. Gylfi hefur þurft að sæta farbanni á meðan og hefur ekkert spilað fótbolta.
Fótbolti.net hafði í dag samband við lögmanninn Pál Kristjánsson og spurði hann út í það, hvort Gylfi ætti von á einhverjum skaðabótum ef hann myndi sækjast eftir því.
„Ef við horfum á þetta út frá íslenskum lögum um meðferð sakamála þá eiga menn sem eru beittir þvingunarúrræðum rétt á einhvers konar skaðabótum; menn sem sitja í gæsluvarðhaldi eða eru handteknir eiga rétt á skaðabótum þegar mál eru felld niður á Íslandi," sagði Páll í samtali við Fótbolta.net. „Það er ákvæði í lögum um að menn eigi slíkan rétt. Það eru þó ekki háar fjárhæðir sem eru í gildi á Íslandi."
„Við vitum ekki forsendur málsins, en það er líka þannig að ef aðili verður fyrir því að bornar séu á hann rangar sakargiftir þá getur hann átt skaðabótakröfu á hendur þeim ber upp á hann slíkar sakir."
Mér finnst það voðalega langsótt
Páll sér ekki fyrir sér að Gylfi verður ríkur á því að fara í skaðabótamál.
„Ég sé ekki fyrir mér að Gylfi verði ríkur maður á einhverju skaðabótamáli við aðila þarna úti. Mér finnst það voðalega langsótt allavega ef við miðum við það hvernig íslenskur réttur er. Miðað við íslenskan rétt er ekki um að ræða neinar verulegar fjárhæðir."
Einhverjir hafa talað um gríðarlega stórt skaðabótamál sem er framundan, stærsta skaðabótamál sögunnar hefur undirritaður heyrt nefnt í samtölum.
„Ég á eftir að sjá það gerast," segir Páll og bætir við:
„Maður þarf líka að horfa á þetta þannig að þegar bornar eru á menn alvarlegar sakir þá þarf lögreglan að hafa í ákveðin úrræði að grípa. Í íslenskum lögum hafa menn ákveðnar forsendur til að fara í skaðabótamál um einhverja hundrað þúsund kalla. Ég sé ekki í fljótu bragði einhverjar forsendur fyrir Gylfa en svo er spurning hvort hann hafi áhuga á því."
Mannlegur harmleikur
Gylfi var settur út úr leikmannahópi Everton á Englandi þegar mál hans fór í rannsókn og hann er nú samningslaus. Hann hefur ekki spilað fótbolta síðan hann var fyrst handtekinn, hvorki með félagsliði né landsliði. Þá hefur orðspor hans borið mikinn hnekk út um allan heim.
„Þetta er mannlegur harmleikur. Hann var ekki útilokaður frá því að vinna sína vinnu, frá því að spila fótbolta. Félagið tók ákvörðun um að menn með ákveðna réttarstöðu skyldi ekki æfa og keppa með liðinu. Þetta er mannlegur harmleikur, fyrst og fremst."
Orðspor Gylfa hefur versnað mikið út af þessu máli. Getur hann gert einhverja skaðabótakröfu út frá því?
„Þá er bara spurningin hver á að borga það. Til þess að eiga kröfu þá þarf einhver að borga það. Það er rétt að orðspor hans hefur borið mikinn hnekki. Ég vona að hann nái að rétta úr því með þessari niðurstöðu," sagði Páll að lokum.