14.12.10 - 08:33
Davíð Örn Atlason
Gai Assulin til Manchester City (Staðfest)

Assulin í leik með Barcelona gegn Manchester City.

Mynd: Getty Images

Gai Assulin, 19 ára gamall ísraelskur miðjumaður er genginn í raðir Manchester City en hann yfirgaf Barcelona nú á dögunum.
Assulin sem er yngsti leikmaðurinn til að leika fyrir ísraelska landsliðið, þá 16 ára gamall skrifaði undir tveggja og hálfs árs samning við City.
Arsenal vildi fá Assulin en hann hefur nú ákveðið að ganga í raðir City eftir að hafa æft með liðinu undanfarnar vikur. Hann segist spenntur að spila í ensku úrvalsdeildinni.
,,Ég hef heyrt margt um City og um leið og ég sá félagið þá vildi ég vera áfram,\" sagði Assulin.
,,Ég er hjá frábæru félagi og ég vonast til þess að vera hérna lengi. Ég verð að nýta tækifærin mín og læra nýja hluti á hverjum degi á æfingu. Ég get vonandi sýnt að ég get spilað í þessari deild.\"
Assulin, sem spilaði æfingaleik með Barcelona gegn City fyrir síðasta tímabil spilaði sinn fyrsta alvöru leik fyrir Barcelona í spænska bikarnum gegn Cultural Leonesa í októbermánuði 2009. Hann hlakkar til að spila með fyrrum liðsfélaga sínum hjá Barcelona, Yaya Toure.
;,Ég tala við Yaya á hverjum degi og ég vonast til þess að geta spilað með honum,\" sagði Assulin að lokum.

Heimild: Soccernet