Fotbolti.net
15.01.11 - 10:58
Hafliði Breiðfjörð

Man Utd lánar Ritchie De Laet til Portsmouth (Staðfest)

De Laet í leik með Manchester United.

De Laet í leik með Manchester United.

Canon

Mynd: Getty Images

Enska Championship félagið Portsmouth sem Hermann Hreiðarsson leikur með hefur fengið varnarmanninn Ritchie De Laet á láni út þessa leiktíð.
De Laet er 22 ára gamall belgískur landsliðsmaður sem hefur áður verið á láni hjá Sheffield United og Preston fyrr á tímabilinu.

Steve Cotterill stjóri Portmsouth var ánægður með komu hans í gær og sagði: ,,Við erum ánægðir með að fá Ritchie á láni.

,,Hann er fjölhæfur varnarmaður sem getur spilað í öllum stöðum í vörninni. Vörnin var svæði sem við þurftum að styrkja svo ég er ánægður.\"


De Laet hafði komið til United frá Stoke City í janúar árið 2009 og hefur leikið sex leiki fyrir félagið.

Heimild: BBC

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.