15.01.11 - 12:50
Ívan Guðjón Baldursson
Makoun er kominn til Villa (Staðfest)
Hann vantar bara atvinnuleyfi til að byrja að spila þar

Hér er Makoun í leik með Lille gegn Manchester United á tímum Ruud van Nistelrooy.

Mynd: Getty Images

Aston Villa hafa lokið við kaupin á Jean Makoun, varnarsinnuðum miðjumanni Lyon.
Kamerúninn er búinn að skrifa undir 3 og hálfs árs samning eftir að hafa staðist læknisskoðun. Hann fær þó ekki að spila strax vegna þess að hann á eftir að fá atvinnuleyfi á Englandi.

Þetta eru fyrstu stóru kaup Gerard Houllier við stjórnvölinn hjá Villa en Makoun er 27 ára gamall og hefur meðal annars spilað með Lille og Lyon í Frakklandi.
Koma Makoun mun koma af stað samkeppni innan liðsins þar sem Stilyan Petrov og Nigel Reo-Coker spila báðir sömu stöðu.
,,Jean er leikmaður sem getur spilað fyrir framan vörnina sem varnarsinnaður miðjumaður og hefur gríðarlega mikla orku svo hann þreytist ekki snemma,\" sagði Houllier.
,,Hann er reyndur leikmaður og hefur spilað gegn bestu liðum Evrópu í Meistaradeildinni með Lille og Lyon. Hann er líka fínn náungi, ég tel að hann eigi auðvelt með að passa inn í hópinn.\"