Fotbolti.net
15.02.11 - 18:22
Magnús Már Einarsson

Björn Helge Riise til Sheffield United á láni (Staðfest)

Björn Helge Riise til Sheffield United á láni (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Sheffield United hefur fengið miðjumanninn Björn Helge Riise á láni frá Fulham út þetta tímabil.

Þessi 27 ára gamli Norðmaður er bróðir John Arne Riise leikmanns Roma.
Björn Helge gekk í raðir Fulham sumarið 2009 en síðan Mark Hughes tók við stjórnartaumunum síðastliðið sumar hefur hann ekki verið inni í myndinni.

Egil Drillo Olsen, landsliðsþjálfari Norðmanna, sagði Björn Helge að finna sér nýtt félag til að fá að spila og nú er ljóst að hann mun leika með Sheffield United út tímabilið.

Björn Helge gæti leikið sinn fyrsta leik með Sheffield United gegn Reading í kvöld.

Heimild: BBC

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.