15.03.11 - 18:14
Magnús Már Einarsson
Guðjón Baldvinsson með KR í sumar (Staðfest)

Mynd: Fótbolti.net - Þórdís Inga Þórarinsdóttir

Guðjón Baldvinson er laus allra mála hjá sænska félaginu GAIS og mun leika með KR í Pepsi-deildinni í sumar.
Guðjón skrifaði undir þriggja ára samning við KR en hann staðfesti þetta í samtali við Fótbolta.net nú í kvöld.

Þessi 24 ára gamli leikmaður fór til GAIS frá KR haustið 2008 en náði ekki að festa sig í sessi hjá sænska félaginu.
Guðjón lék sem lánsmaður með KR í fyrrasumar þar sem hann skoraði 10 mörk í 13 leikjum í Pepsi-deildinni.
Í vetur hefur hann æft með KR og spilað með liðinu í Reykjavíkurmótinu og Lengjubikarnum.
Á dögunum fór Guðjón til Póllands og Rússlands á reynslu en nú er ljóst að hann verður með KR-ingum í sumar.