Fotbolti.net
15.04.11 - 15:09
Elvar Geir Magnússon

Einar Marteinsson í Njarðvík (Staðfest)

Einar Marteinsson í Njarðvík (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Njarðvík úr annarri deild hefur fengið varnarmanninn Einar Marteinsson til liðs við sig frá Val.
Einar, sem er 22 ára gamall, er uppalinn hjá Val en hann lék sinn fyrsta meistaraflokksleik árið 2008.

Síðan þá hefur hann alls leikið 19 leiki með Val í Pepsi-deildinni og VISA-bikarnum.

Í fyrra var Einar á láni hjá HK þar sem hann skoraði tvö mörk í þrettán leikjum í fyrstu deildinni og VISA-bikarnum.

Njarðvíkingar framlengdu einnig saming sinn við Árna Þór Ármannsson í vikunni. Árni hefur leikið með Njarðvík frá 2005 en hann skrifaði undir nýjan tveggja ára samning.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.