15.11.10 - 16:21
Magnús Már Einarsson
Brynjar Gauti í ÍBV (Staðfest)

Brynjar Gauti með búning ÍBV við undirskriftina í dag.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

ÍBV hefur fengið Brynjar Gauta Guðjónsson fyrirliða Víkings frá Ólafsvík til liðs við sig en hann skrifaði undir þriggja ára samning við félagið nú rétt í þessu.
Þessi 18 ára gamli varnarmaður hefur þrátt fyrir ungan aldur leikið með meistaraflokki Víkings frá því árið 2007.
Í sumar hjálpaði hann Víkingi að vinna aðra deildina og komast í undanúrslit í VISA-bikarnum.
Samtals spilaði hann 27 leiki í deild og bikar í sumar og skoraði í þeim fjögur mörk.
Brynar Gauti skrifaði undir nýjan samning við Víking í sumar en mörg félög hafa sýnt honum áhuga að undanförnu og svo fór að lokum að Eyjamenn náðu að krækja í leikmanninn.
Brynjar Gauti er þriðji leikmaðurinn sem ÍBV fær til liðs við sig síðan að tímabilið kláraðist en áður höfðu Guðmundur Þórarinsson og Ian Jeffs samið við Eyjamenn.
Rætt verður við Brynjar Gauta í viðtali á Fótbolta.net síðar í dag.