Fotbolti.net
15.11.10 - 19:13
Alexander Freyr Tamimi

Þórhildur Stefánsdóttir í Stjörnuna (Staðfest)

Þórhildur Stefánsdóttir er gengin til liðs við Stjörnuna frá Haukum.

Þórhildur Stefánsdóttir er gengin til liðs við Stjörnuna frá Haukum.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Kvennaboltinn
Kvennalið Stjörnunnar hefur fengið til liðs við sig Þórhildi Stefánsdóttur frá Haukum, en hún er 19 ára miðjumaður.
Þórhildur hóf meistaraflokksferil sinn hjá HK/Víkingi og lék með þeim í efstu deild árið 2008 og í 1. deildinni ári síðar. Á liðnu sumri spilaði hún hins vegar með nýliðum Hauka og lék alls 16 leiki í Pepsi-deildinni. Hún skoraði eitt mark á tímabilinu.

Þórhildur á að baki átta leiki með U-19 landsliði Íslands og tvo með U-17 liðinu.

Einar Páll Tamimi, formaður meistaraflokksráðs kvenna hjá Stjörnunni, sagði í samtali við Fótbolta.net að hann fagni komu Þórhildar.

,,Við erum gríðarlega ánægð með að hafa fengið Þórhildi til liðs við okkur. Við höfum lengi haft augastað á henni og nú voru aðilar sammála um að Stjarnan væri rétta félagið fyrir hana,\" sagði Einar Páll við Fótbolta.net.

,,Það voru ekki margir á lista okkar yfir þá leikmenn sem við töldum okkur þurfa til að gera atlögu að titli á næsta ári, en Þórhildur var ein þeirra.\"
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.