Fotbolti.net
16.01.24 - 13:50
Elvar Geir Magnússon

De Rossi kynntur hjá Roma (Staðfest) - „Velkominn heim“

De Rossi var í þjálfarateymi ítalska landsliðsins.

De Rossi var í þjálfarateymi ítalska landsliðsins.

Canon

Mynd: EPA

Daniele De Rossi hefur verið ráðinn stjóri Roma og skrifaði hann undir samning út tímabilið. Hann mun stýra sinni fyrstu æfingu hjá liðinu síðdegis.

„Eftir átján ára leikmannaferil hjá Roma snýr De Rossi heim sem aðalþjálfari. Hans fyrsti leikur verður gegn Verona á laugardag. Velkominn aftur heim,“ segir í tilkynningu Roma.
Mourinho rekinn frá Roma (Staðfest)
TENGT EFNI

Mourinho rekinn frá Roma (Staðfest)

De Rossi er goðsögn hjá Roma en hann varð heimsmeistari með ítalska landsliðinu 2006. Hann kom upp úr akademíu Roma og lék 616 leiki fyrir aðallið félagsins.

De Rossi var aðstoðarmaður Roberto Mancini á EM 2020 og hann tók við SPAL í október 2022 en var rekinn í febrúar 2023 eftir að hafa aðeins unnið þrjá leiki af sautján.

„Ég vil þakka Friedkin fjölskyldunni fyrir að sýna mér traustið og láta þessa ábyrgð í mínar hendur. Ég mun gefa allt sem ég get í þær áskoranir sem bíða. Allir vita hvaða þýðingu Roma hefur fyrir mig og þetta eru miklar tilfinningar," segir De Rossi.

Roma staðfesti í morgun að búið væri að reka Jose Mourinho, tveimur dögum eftir 3-1 tap gegn AC Milan í ítölsku A-deildinni og viku eftir 1-0 tap gegn erkifjendunum í Lazio í ítalska bikarnum.

Roma er með 29 stig, fimm stigum frá Fiorentina sem er í fjórða sætinu. Liðið hefur skorað 32 mörk og fengið á sig 24 í fyrstu 20 deildarleikjunum.

De Rossi átti langan feril sem leikmaður Roma.

De Rossi átti langan feril sem leikmaður Roma.

Canon

Mynd: Getty Images

Serie A - karlar

#LiðLmunStig
1Lazio11+1629
2Inter11+1528
3Roma11+2127
4Milan11+1024
5Como11+823
6Frosinone11+920
7Juventus11+318
8Bologna11+217
9Cagliari11-516
10Napoli11+415
11Torino11-214
12Atalanta11-314
13Genoa11-513
14Lecce11-1010
15Fiorentina11-89
16Parma11-88
17Sassuolo11-138
18Monza11-87
19Venezia11-136
20Udinese11-135
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.