16.02.11 - 06:00
Magnús Már Einarsson
Stefán Ingi Gunnarsson í Dalvík/Reyni (Staðfest)

Mynd: Leiknir.com

Mynd: Leiknir.com
Dalvík/Reynir hefur fengið sóknarmanninn Stefán Inga Gunnarsson til liðs við sig frá KB. Stefán er 23 ára gamall og skoraði hann sextán mörk í jafnmörgum leikjum fyrir KB í 3. deildinni síðasta sumar.
Dalvík/Reynir vann einmitt KB naumlega í undanúrslitum 3. deildarinnar í fyrra og tryggði sér þar með sæti í 2. deild. Stefán Ingi skoraði í einvíginu.
Hann er fjölhæfur leikmaður og getur leyst ýmsar aðrar stöður. Hann lék um síðustu helgi sinn fyrsta leik fyrir Dalvík/Reyni og gerði þá bæði mörk liðsins í 2-1 sigri gegn Tindastóli/Hvöt í Norðurlandsmótinu.
Hann er fyrsti leikmaðurinn sem Dalvík/Reynir fær til sín á þessu undirbúningstímabili.