16.03.11 - 11:24
Brynjar Ingi Erluson
Luis Suarez tekur við Hondúras (Staðfest)

Luis Fernando Suarez

Mynd: Getty Images

Luis Fernando Suarez

Mynd: Getty Images
Knattspyrnusamband Hondúras hefur ráðið Luis Fernando Suarez til þess að þjálfa A-landslið þjóðarinnar.
Suarez gerði það síðast gott með landslið Ekvador, en hann kom þeim á HM 2006 í Þýskalandi. Þar fagnaði hann besta árangri liðsins frá upphafi þar sem hann kom Ekvador í 16-liða úrslit mótsins en liðið beið þar lægri hlut fyrir Englendingum 1-0.
Hann tekur við liði Hondúras af mexíkóanum Juan des Dios Castillo sem sagði upp eftir Mið-Ameríkumótð í janúar síðastliðnum.
Fyrsti leikur Hondúras undir stjórn Suarez verður gegn Suður-Kóreu í vináttuleik þann 25. mars næstkomandi áður en liðið mætir Kína 29. mars.

Heimild: AP