Fotbolti.net
16.03.11 - 18:03
Magnús Már Einarsson

Róbert Örn í Víking R. (Staðfest)

Róbert Örn Óskarsson.

Róbert Örn Óskarsson.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Magnús Már Einarsson

Víkingur R. hefur fengið markvörðinn Róbert Örn Óskarsson til liðs við sig frá BÍ/Bolungarvík en þetta kemur fram á Vikingur.net. Róbert skrifaði undir tveggja ára samning við Víking og verður því hjá félaginu út tímabilið 2013.
Róbert á að keppa um markvarðarstöðuna við Magnús Þormar og Skúla Sigurðsson en sá síðarnefndi framlengdi samning sinn við Víkingi til ársins 2013 fyrr í vikunni.

Magnús, sem hefur verið aðalmarkvörður Víkings undanfarin tvö tímabil, ristarbrotnaði fyrr á árinu og er ekki vitað hvort hann verði klár í fyrsta leik í Pepsi-deildinni.

Róbert er ættaður að vestan en var fyrirliði Íslandsmeistara FH í 2. flokki árið 2006.

Frá FH fór hann einu sinni á lán til KS/Leifturs en 2009 fór hann aftur heim á Ísafjörð og hefur leikið með BÍ/Bolungarvík undanfarin tvö tímabil við góðan orðstír. Í vetur hefur Róbert ekki leikið með BÍ/Bolungarvík heldur æft með Víkingi og nú hefur hann gengið frá samningi við félagið.

Heimild: Vikingur.net

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.