Fotbolti.net
16.03.11 - 22:33
Magnús Már Einarsson

Hrefna Huld Jóhannesdóttir í Aftureldingu (Staðfest)

Hrefna Huld og John Andrews.

Hrefna Huld og John Andrews.

Canon

Mynd: Heimasíða Aftureldingar

Kvennaboltinn
Framherjinn reyndi Hrefna Huld Jóhannesdóttir hefur gengið til liðs við Aftureldingu.

Auk þess að spila með liðinu mun hún starfa sem aðstoðarþjálfari með John Andrews sem er aðalþjálfari liðsins.
Hrefna, sem er þrítug, hefur skorað samtals 177 mörk í 207 deildar og bikarleikjum hér á landi.

,,Við höfum haft áhuga á Hrefnu í nokkur ár og erum ánægð með að hafa loksins fengið hana til félagsins,\" sagði John Andrews þjálfari Aftureldingar við Fótbolta.net.

,,Við höfum ungan og hungraðan hóp en það er alltaf gott að fá reynslu inn og gæðaleikmann frá Íslandi eins og Hrefnu.\"

Hrefna hefur nánast allan sinn feril leikið með KR en í fyrra skoraði hún fimmtán mörk þegar hún hjálpaði Þrótti að komast upp í Pepsi-deildina.

Að auki hefur Hrefna leikið tíu landsleiki fyrir Íslands hönd og skorað í þeim þrjú mörk.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.