Real Madrid vill Konate - Arsenal ætlar að fá sóknarmann - Höjlund á óskalista Inter
   mán 16. júní 2025 10:34
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net
„Rúnar Kristins er fullkominn fyrir Vuk“
Vuk í leiknum gegn FH í gær.
Vuk í leiknum gegn FH í gær.
Mynd: Fótbolti.net - J.L.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Vuk Oskar Dimitrijevic blómstrar hjá Fram og skoraði sitt sjötta deildarmark á tímabilinu í 2-0 sigri gegn FH í gær. Hann hefur skorað í fjórum leikjum í röð.

Vuk náði aldrei almennilegu flugi hjá FH en geislar af sjálfstrausti í treyju Fram. Sævar Atli Magnússon, leikmaður Brann, ólst upp með Vuk hjá Leikni í Breiðholtinu og tjáði sig um hann í útvarpsþættinum Fótbolti.net nýlega. Hann segir að Rúnar Kristinsson, þjálfari Fram, hafi náð því besta út úr Vuk.

Lestu um leikinn: Fram 2 -  0 FH

„Loksins segi ég bara. Rúnar Kristins er fullkominn fyrir Vuk. Stundum áttu lélega leiki en hann er gæi sem þarf að finna að hann er með traustið. Mér fannst það vera þannig hjá FH að ef hann átti einn eða tvo lélega leiki þá var hann kominn á bekkinn," segir Sævar.

„Vuk er orðinn miklu betri varnarmaður en hann var, hann vinnur rosa fyrir liðið og er byrjaður að skila mörkum og stoðsendingum. Hann er orðinn virkilega góður leikmaður í þessari deild og er farinn að spila betur og betur."

Okkar besti leikmaður
Brasilíumaðurinn Fred, sem spilar með Fram, sagði við mbl.is eftir sigurinn í gær að Vuk væri besti leikmaður liðsins.

„Að mínu mati er Vuk okk­ar besti leikmaður. Ég sagði Thiago í fyrra að við þurf­um leik­mann eins og Vuk í okk­ar lið. Okk­ur vantaði kant­mann sem ræðst á bakverði sem ger­ir okk­ar vinnu auðveld­ari,“ sagði Fred.

Heimir Guðjónsson, þjálfari FH, sagði eftir leikinn samgleðjast Vuk en sagðist ekki sjá eftir honum.

„Ég er ánægður með að Vuk gangi vel. Sé ég eft­ir hon­um? Nei - hann var bú­inn að vera í fjög­ur ár í FH og und­ir hand­leiðslu margra frá­bærra þjálf­ara en það náði eng­inn að ná því besta út úr hon­um. Það er já­kvætt fyr­ir hann að hann sé að standa sig hér,“ sagði Heimir við mbl.is.
Athugasemdir
banner
banner