Fotbolti.net
16.11.10 - 07:43
Ívan Guðjón Baldursson
Ítalska deildin

Pierpaolo Bisoli rekinn frá Cagliari (Staðfest)

Roberto Donadoni stýrði ítalska landsliðinu á Evrópumóti þar sem liðinu gekk ekki sérstaklega vel.

Roberto Donadoni stýrði ítalska landsliðinu á Evrópumóti þar sem liðinu gekk ekki sérstaklega vel.

Canon

Mynd: Getty Images

Pierpaolo Bisoli fyrrverandi þjálfari Cagliari er nú atvinnulaus eftir að hann var rekinn í kjölfar 1-0 ósigurs gegn Genoa á sunnudaginn. Cagliari hefur aðeins unnið tvo leiki af fyrstu tólf þetta tímabilið og stjórn liðsins fannst hún þurfa að breyta til.
,,Cagliari Calcio hefur komist að samkomulagi við þjálfarann Pierpaolo Bisoli til að binda enda á starfsemi hans í Sardiníu,\" stendur á vefsíðu félagsins.

Einnig birtust á vefsíðunni skilaboð frá forseta félagsins.

,,Þjálfarinn var alltaf mjög fagmannlegur í sínu starfi og við viljum þakka honum fyrir vinnuna sem hann hefur framkvæmt hér. Því miður eru það úrslitin sem gilda og við verðum að taka stórar ákvarðanir sem geta bundið enda á sambönd.\"

,,Bisoli mun alltaf vera góður þjálfari og eftir þetta ævintýri getur hann labbað út með hausinn hátt á lofti,\"
bætti forseti félagsins við.

Bisoli var ráðinn í upphafi tímabilsins. Roberto Donadoni fyrrverandi þjálfari Livorno, Napoli og ítalska landsliðsins er talinn líklegur sem næsti þjálfari liðsins.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.