Fotbolti.net
16.11.10 - 12:20
Magnús Már Einarsson

Ferguson fær De Laet á láni frá pabba (Staðfest)

Ferguson fær De Laet á láni frá pabba (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Preston North End hefur fengið Ritchie de Laet varnarmann Manchester United á láni.

Ekki er búið að ákveða hversu langur lánssamningurinn verður en De Laet spilar væntanlega sinn fyrsta leik með Preston þegar liðið mætir Heiðari Helgusyni og félögum í QPR á laugadag.
Darren Ferguson, stjóri Preston, fékk fyrr á tímabilinu Joshua King og Matthew James á láni frá Manchester United enda hæg heimatökin þar sem hann er sonur Sir Alex Ferguson.

Darren er að leita að meiri liðsstyrk fyrir Preston sem situr á botni Championship deildarinnar í augnablikinu.

Á óskalistanum eru meðal annars Danny Pugh og Michael Tonge hjá Stoke en Darren vonast til að fá þá á láni.

Heimild: Sporting Life

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.