Fotbolti.net
16.11.10 - 16:39
Hafliði Breiðfjörð

Arnar Gunnlaugsson í Fram (Staðfest)

Frá undirskriftinni í dag ásamt Þorvaldi Örlygssyni þjálfara og Lúðvík Þorgeirssyni formanni stjórnar Fram FFR.

Frá undirskriftinni í dag ásamt Þorvaldi Örlygssyni þjálfara og Lúðvík Þorgeirssyni formanni stjórnar Fram FFR.

Canon

Mynd: Björn Þórisson

Arnar Bergmann Gunnlaugsson er genginn í raðir Fram en þetta var staðfest á vef félagsins rétt í þessu. Arnar kemur til félagsins frá Haukum þar sem hann var spilandi aðstoðarþjálfari á síðustu leiktíð.

Arnar skrifaði undir eins árs samning við Fram og verður því leikmaður félagsins á komandi leiktíð í Pepsi-deild karla.
Arnar sem er fæddur árið 1973 hefur komið víða við á sínum knattspyrnuferli en hann lék sinn fyrsta leik með meistaraflokki ÍA árið 1989 og síðan þá hefur hann leikið með félögum eins og Feyenoord, FC Nuremberg, Sochaux, Bolton Wanderers, Leicester City, Stoke, Dundee United, KR, FH, Val og svo Haukum.

Arnar hefur leikið um 275 deildarleiki en hann spilaði 18 leiki með Haukum í sumar og skoraði 8 mörk í þeim leikjum.

,,Stjórn Fram býður Arnar velkominn til félagsins og væntir þess að reynsla hans og hæfileikar komi félaginu til góða á komandi leiktíð,\" segir á vef Fram í dag.

Heimild: Vefur Fram

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.