Fotbolti.net
17.01.11 - 17:06
Magnús Már Einarsson

Fjórir leikmenn frá Senegal í Selfoss (Staðfest)

Logi Ólafsson þjálfari Selfyssinga.

Logi Ólafsson þjálfari Selfyssinga.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fjórir ungir leikmenn frá Senegal munu ganga í raðir Selfyssinga á næstu dögum en þetta kemur fram á sunnlenska.is.
,,Það eru allir pappírar klárir vegna komu Senegalanna en það er einhver handavinna eftir hjá Útlendingastofnun. Hún þarf að staðfesta pappíra þeirra og senda til danska sendiráðsins í Gambíu sem sér um mál leikmannanna,\" sagði Logi Ólafsson þjálfari Selfyssinga við Sunnlenska.is.

Leikmennirnir fjórir eru Babacar Sarr, tvítugur örfættur miðjumaður, Ibrahima Ndiaye, tvítugur framherji, Sena Abdalha, 18 ára framherji og Sidy Sow, 22 ára örfættur kantmaður. Þeir koma allir frá knattspyrnuakademíu í Dakar. Þjálfari þeirra, Djibrial Cisse, mun fylgja þeim til Íslands og hjálpa þeim að koma sér fyrir á Selfossi.

Logi segir leikmennina fjóra alla styrkja liðið en einn þeirra æfði undir stjórn Loga hjá KR í fyrravetur.

,,Hann er mjög góður miðjumaður og ég geri ráð fyrir því eftir að hafa rætt við mína menn úti að hinir þrír séu jafngóðir eða betri. Það verður samt að koma í ljós hvar þeir standa og hvað þeir geta en þeir eru fengnir hingað til þess að styrkja liðið sjálft. Auðvitað eykst samkeppnin í hópnum við þetta en við þurfum líka að búa til samkeppni um stöður.\"

Selfyssingar fengu í vetur Auðun Helgason frá Grindavík en auk Senegalanna eru fleiri járn í eldinum. Þar á meðal gæti hinn sænski Martin Dohlsten komið aftur til félagsins.

,,Martin er núna að leita fyrir sér hjá félagi í Svíþjóð og við fylgjumst með því en ef hann hefur áhuga á að koma aftur þá er hann alveg klárlega leikmaður sem við höfum áhuga á,\" sagði Logi við Sunnlenska.is.

Heimild: Sunnlenska.is

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.