Fotbolti.net
17.02.11 - 11:51
Magnús Már Einarsson

Sveinbjörn Jónasson í Þrótt (Staðfest) - Eysteinn hættur

Sveinbjörn Jónasson.

Sveinbjörn Jónasson.

Canon

Mynd: Agl.is - Gunnar Gunnarsson

Þróttur hefur fengið kant og sóknarmanninn Sveinbjörn Jónasson til liðs við sig frá Fjarðabyggð. Sveinbjörn lék með Grindavík árið 2009 og fyrri hlutann á síðasta sumri áður en hann gekk til liðs við Fjarðabyggð.
Sveinbjörn, sem er 24 ára, lék einnig með Fjarðabyggð árið 2008 þar sem hann var þriðji markahæsti leikmaðurinn í fyrstu deild með þrettán mörk. Þar áður lék hann með uppeldisfélagi sínu Huginn.

Þróttur mætir FH í Lengjubikarnum á morgun og þar gæti Sveinbjörn leikið sinn fyrsta mótsleik með liðinu.

Varnarmaðurinn reyndi Eysteinn Pétur Lárusson verður hins vegar ekki með Þrótturum í sumar en hann hefur hent skónum upp á hillu.

Eysteinn, sem er 32 ára, lék sextán leiki í fyrstu deildinni í fyrra en hann hefur skorað sjö mörk í 159 deildar og bikarleikjum á ferli sínum með Þrótti.

Þá er ólíklegt að Muamer Sadikovic verði áfram hjá Þrótti á næsta tímabili en hann gekk í vikunni til liðs við félag í Bosníu-Herzegóvínu.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.