17.02.11 - 12:36
Magnús Már Einarsson
Roberto Carlos til Rússlands (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Brasilíski vinstri bakvörðurinn Roberto Carlos hefur gengið til liðs við rússneska félagið Anzhi Makhachkala.
Þessi 37 ára gamli leikmaður skrifaði undir tveggja og hálfs árs samning við félagið.
Carlos yfirgaf brasilíska félagið Corinthians í síðustu viku eftir að stuðningsmenn félagsins réðust að honum eftir að liðið datt út í Libertadores bikarnum.
Carlos lék á árum áður lengi með Real Madrid auk þess sem hann var á mála hjá Inter.
Þá á Carlos 125 leiki að baki með brasilíska landsliðinu en hann varð meðal annars heimsmeistari með liðinu árið 2002.

Heimild: BBC