Fotbolti.net
17.02.11 - 13:02
Magnús Már Einarsson

Aron, Frosti og Vilhjálmur Darri í HK (Staðfest)

Aron Bjarnason.

Aron Bjarnason.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Magnús Már Einarsson

HK hefur fengið bræðurna Aron og Frosta Bjarnason til liðs við sig frá Hvöt auk þess sem Vilhjálmur Darri Einarsson er kominn til félagsins frá KR.
Allir þessir leikmenn hafa æft með HK í vetur og leikið með liðinu á Fótbolta.net mótinu.

Aron og Frosti hafa verið fastamenn í liði Hvatar allan sinn meistaraflokksferil. Þeir eru báðir varnarmenn en Frosti hefur einnig leikið á kantinum hjá HK.

Vilhjálmur Darri er miðjumaður en hann gekk upp úr öðrum flokki síðastliðið haust. Í fyrra lék Vilhjálmur með Grindavík fyrri hluta tímabilsins en hann skipti síðan aftur yfir í uppeldisfélag sitt KR.

Leikmennirnir eru allir komnir með leikheimild fyrir leik HK gegn Fram í Lengjubikarnum í kvöld.

Að auki hefur markvörðurinn Gunnar Geir Gunnlaugsson komið til HK eftir að hafa leikið með Ými varaliði félagsins í fyrra.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.