Fotbolti.net
17.03.11 - 10:42
Magnús Már Einarsson

Gunnar Heiðar til Norrköping (Staðfest)

Gunnar Heiðar til Norrköping (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Gunnar Heiðar Þorvaldsson mun ekki leika með ÍBV í Pepsi-deildinni í sumar því í morgun skrifaði hann undir þriggja ára samning við sænska félagið Norrköping en þetta kemur fram á Vísi.

ÍBV þarf því að finna nýjan framherja fyrir sumarið en félagið er núna að skoða tvo leikmenn frá Danmörku og Austurríki.

Gunnar Heiðar gerði fjögurra ára samning við uppeldisfélag sitt ÍBV í síðasta mánuði en hann hafði þó leyfi til að losna undan samningi ef tilboð kæmi að utan.
Í upphafi mánaðarins fór Gunnar Heiðar með Norrköping í æfingaferð til Spánar og þar heillaði hann forráðamenn félagsins.

„Þetta var alls ekkert auðveld ákvörðun en ég spurði mig að því hvenær ég fengi aftur svona gott tækifæri. Á endanum ákvað ég því að taka slaginn,\" sagði Gunnar Heiðar við Vísi.

Gunnar Heiðar þekkir vel til í Svíþjóð en hann varð markakóngur þar í landi með Halmstad árið 2005.

Gunnar mun nú leika með Norrköping sem var að komast í úrvalsdeildina á nýjan leik. Undanfarin ár hafa nokkrir Íslendingar leikið með liðinu, síðast Gunnar Þór Gunnarsson sem gekk í raðir KR í vetur.

Heimild: Vísir

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.