Fotbolti.net
17.03.11 - 18:03
Magnús Már Einarsson

Ralf Rangnick tekur við Schalke (Staðfest)

Ralf Rangnick tekur við Schalke (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Ralf Rangnick hefur verið ráðinn þjálfari Schalke en hann tekur við liðinu af Felix Magath.
Rangnick gerði samning við Schalke til ársins 2014 en hann hefur verið í fríi frá fótbolta síðan hann hætti að þjálfa Gylfa Þór Sigurðsson og félaga í Hoffnheim í byrjun janúar.

Rangnick þekkir til hjá Schalke því að hann stýrði liðinu frá september 2004 til desember 2005.

Hann mun formlega taka við á mánudag og því mun Seppo Eickhorn stýra Schalke í leiknum gegn Bayer Leverkusen um helgina.

Rangnick stýrir síðan sínum fyrsta leik gegn St Pauli þann 1. apríl en hann mun einnig fá það verkefni að stýra liðinu í 8-liða úrslitum Meistaradeildarinnar í næsta mánuði.

Heimild: Sporting Life

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.