Fotbolti.net
17.03.11 - 19:09
Magnús Már Einarsson

Fabio Borini til Swansea á láni (Staðfest)

Fabio Borini til Swansea á láni (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Swansea hefur fengið ítalska framherjann Fabio Borini á láni frá Chelsea út tímabilið.

Þessi nítján ára gamli leikmaður hefur leikið átta leiki með aðalliði Chelsea án þess að skora.
Hann mun núna reyna að hjálpa Swansea að komast upp í ensku úrvalsdeildina en liðið er sem stendur í þriðja sæti í Championship deildinni.

Brendan Rodgers, stjóri Swansea, þekkir til Borini því hann vann hjá Chelsea á sínum tíma.

,,Ég er ánægður með að krækja í hann. Hann er ungur leikmaður með frábæra hæfileika,\" sagði Rodgers.

Heimild: BBC

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.