Fotbolti.net
17.03.11 - 17:57
Magnús Már Einarsson

Jens Lehmann í Arsenal (Staðfest)

Jens Lehmann í Arsenal (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Þýski markvörðurinn Jens Lehmann hefur tekið hanskana af hillunni og gert samning við Arsenal út tímabilið. Lehmann verður Manuel Almunia til halds og trausts þar sem Wojciech Szczesny, Lukasz Fabianski og Vito Mannone eru allir frá keppni vegna meiðsla.
Lehmann, sem er 41 árs, lagði hanskana á hilluna á síðasta tímabili en hann er félagslaus og getur því samið við Arsenal þrátt fyrir að félagaskiptagugginn sé lokaður.

Lehmann stóð á milli stanganna hjá Arsenal frá 2003 til 2008 og þekkir því vel til hjá félaginu.

,,Ég er mjög spenntur fyrir því að ganga aftur til liðs við Arsenal. Ég hef haldið mér í formi síðan síðasta tímabil kláraðist og er tilbúinn að spila með liðinu hvenær sem er,\" sagði Lehmann.

Lehmann hefur hafið æfingar með Arsenal og verður að öllum líkindum í hópnum gegn WBA á laugardag.

Heimild: Heimasíða Arsenal

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.