17.11.10 - 06:00
Magnús Már Einarsson
Þórir Rafn og Sigurður Hilmar taka við Þrótti Vogum (Staðfest)

Sigurður Hilmar og Þórir Rafn við undirskriftina.

Mynd: Þróttur Vogum

Þórir Rafn Hauksson og Sigurður Hilmar Guðjónsson hafa verið ráðnir þjálfarar 3. deildar liðs Þróttar Vogum og skrifuðu þeir félagar undir eins árs samning við félagið í Vogunum í fyrrakvöld.
Þórir, sem er 26 ára gamall, hefur spilað undanfarin ár með Þrótti Vogum en hefur einnig spilað með Njarðvík, ÍH og Víði Garði.
Þórir er menntaður íþróttafræðingur frá Háskóla Reykjavíkur og hefur einnig lokið KSÍ B. Þórir hefur þjálfað yngri flokka hjá Njarðvík undanfarin ár og mun halda því áfram, samhliða þjálfun meistaraflokks Þróttar Vogum.
Sigurður Hilmar Guðjónsson er 29 ára gamall Sandgerðingur sem hefur spilað með Þrótti Vogum síðustu þrjú árin auk þess að hafa þjálfað yngri flokka Þróttar Vogum. Sigurður Hilmar hefur einnig spilað með meistaraflokki Reynis Sandgerði.
Hann hefur lokið KSÍ III þjálfunarstigi og byrjaði í haust að þjálfa yngri flokka í Njarðvík og mun hann halda því áfram ásamt því að þjálfa meistaraflokk Þróttar Vogum.
Þeir félagar taka við Þrótti af markamaskínunni Halli K. Ásgeirssyni sem þjálfaði liðið síðastliðið tímabil.