17.12.10 - 12:09
Hafliði Breiðfjörð
María Björg Ágústsdóttir í KIF Örebro (Staðfest)

María í leik með Val í sumar.

Mynd: Fótbolti.net - Tomasz Kolodziejski

María Björg Ágústsdóttir markvörður Íslands- og bikarmeistara Vals er gengin í raðir sænska félagsins KIF Örebro en þetta kom fram á sænska kvennafótboltavefnum Damfotboll.com.
María Björg leysir stöðu Kristin Hammerström í marki KIUF Örebro og kemur til sænska félagsins í janúar. Hún semur samning sem gildir til tveggja ára, eða svokallaður 1+1 samningur sem þýðir að í honum er endurskoðunarákvæði eftir fyrra árið.
,,María hefur verið okkar fyrsti kostur síðan Kristin sagði að hún færi frá okkur. Við höfum unnið mikið í að kynna okkur persónuleika Maríu og gæði sem leikmanns og persónu,\" sagði Anette Karhu formaður félagsins á sænska vefnum.
María er þriðji Íslendingurinn í herbúðum KIF Örebro en fyrir eru þær Edda Garðarsdóttir og Ólína Guðbjörg Viðarsdóttir hjá félaginu.
Þar með er það orðið staðfest sem benti til að María Björg færi frá Val en óljóst er hver mun verja mark Hlíðarendaliðsins á næstu leiktíð.
María verður fjórði íslenski markvörðurinn í sænsku deildinni. Þóra Björg Helgadóttir er með sænsku meisturunum í LdB Malmö, Guðbjörg Gunnarsdóttir hjá Djurgården og þá var Sandra Sigurðardóttir að ganga til liðs við Jitex frá Stjörnunni.

Heimild: Damfotboll