Fotbolti.net
18.01.11 - 06:00
Magnús Már Einarsson

Ragnar Mar í Víking Ólafsvík (Staðfest)

Ragnar Mar (í miðjunni) er kominn aftur til Ólafsvíkinga.

Ragnar Mar (í miðjunni) er kominn aftur til Ólafsvíkinga.

Canon

Mynd: Austurglugginn/Gunnar

Ragnar Mar Sigrúnarson hefur gengið til liðs við Víking Ólafsvík á nýjan leik eftir eitt ár í herbúðum HK.
Ragnar er leikjahæsti leikmaður Ólafsvíkinga frá upphafi með 199 leiki.

,,Þetta leggst bara vel í mig, Víkingur er með gott lið og gekk mjög vel í fyrra. Það er að koma ný stúka sem gerir umgjörðina enn betri og það verður gaman að spila í Ólafsvík á næsta ári,\" sagði Ragnar í viðtali á heimasíðu Víkings.

,,Deildin verður mjög sterk enda fullt af góðum liðum og ég er viss að Víkingur er eitt af þeim. Ég held að liðið muni spjara sig vel í sumar, við erum með skemmtilega blöndu af leikmönnum, bæði ungum og svo eldri reyndari mönnum.\"

Þessi 26 ára gamli varnarmaður fór frá Víkingi síðastliðinn vetur og gekk í raðir HK.

Þar náði hann ekki að festa sig í sessi en Ragnar lék alls sex leiki með HK síðastliðið sumar.

Heimild: Heimasíða Víkings Ólafsvíkur

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.