18.01.11 - 06:00
Magnús Már Einarsson
Logi í Dalvík/Reyni (Staðfest) - Jóhann áfram aðstoðarþjálfari

Mynd: Fótbolti.net - Magnús Már Einarsson

Dalvík/Reynir, sem leikur í annarri deildinni í sumar, hefur fengið markvörðinn Loga Ásbjörnsson til liðs við sig frá Þór.
Logi lék með Magna frá 2007-2009 en í fyrra var hann varamarkvörður hjá Þór þar sem hann lék einn leik í fyrstu deildinni.
Logi missti af hluta af síðasta tímabili vegna fótbrots en hann æfði reyndar fótbrotinn í nokkrar vikur síðastliðið vor.
Hjá Dalvík/Reyni mun hann berjast um markvarðarstöðuna við þjálfarann Atla Má Rúnarsson og Hans Beck.
Að auki hefur Dalvík/Reynir samið við Jóhann Hreiðarsson um að vera áfram spilandi aðstoðarþjálfari liðsins. Jóhann mun flytja til Dalvíkur ásamt fjölskyldu í byrjun Apríl.